Þjónusta
UT þjónusta, rekstur og stafrænar lausnir fyrir fyrirtæki
Öruggari rekstur, færri truflanir og fyrirsjáanlegri kostnaður — það er kjarninn í þjónustu Prod.
Við tökum að okkur daglegan UT rekstur, netöryggi, Microsoft 365, Azure, afritun og hýsingu, ásamt hugbúnaðargerð, sjálfvirkni, API tengingum og AI ráðgjöf. Prod getur verið heildarrekstraraðili, viðbót við innra UT-teymi, sérfræðiráðgjafi í afmörkuðum verkefnum eða þróunaraðili fyrir sérlausnir.
Fáðu raunhæfa kostnaðaráætlun
Svaraðu nokkrum spurningum um starfsfólk, búnað, leyfi, öryggi og þjónustustig. Áætlunin uppfærist jafnóðum og gefur okkur góðan grunn að raunhæfu tilboði.
Tekur um tíu mínútur
Kjarnaþjónusta
Rekstur og öryggi
Kerfin virka, gögnin eru varin og starfsfólkið fær aðstoð þegar á þarf að halda — við tökum ábyrgð á daglegum rekstri, öryggi, afritun og hýsingu tækniumhverfisins.
Þróun og sjálfvirkni
Færri handtök, færri villur og betri yfirsýn — við smíðum hugbúnað, tengjum kerfi saman og gerum endurtekin verkefni sjálfvirk.
AI og stafrænar lausnir
Finndu verkefnin þar sem gervigreind sparar raunverulega tíma — og innleiddu hana án þess að fórna öryggi eða stjórn á gögnum.
Óviss hvar á að byrja?
Bókaðu óskuldbindandi samtal — við förum yfir stöðuna og skilum tillögum sem nýtast, hvort sem þú velur okkur eða ekki.