Fara beint í efni
Öll þjónusta

UT-ráðgjöf fyrir fyrirtæki og opinbera aðila

Skýr greining og raunhæf næstu skref

Góð tækniráðgjöf byrjar á rekstrinum: hvað þarf að virka, hvað tefur fólkið og hvaða áhættu þarf að draga úr. Við förum yfir stöðuna með ykkur og skilgreinum verkefni sem hægt er að framkvæma.

Við aðstoðum fyrirtæki, ríkisaðila og sveitarfélög við áætlanagerð, val á tæknilausnum og innleiðingu breytinga. Þið fáið rökstudda forgangsröðun, skýra ábyrgðarskiptingu og yfirsýn yfir næstu skref.

Prod getur líka komið að framkvæmdinni: rekstri kerfa, samþættingu, hugbúnaðarþróun, upplýsingaöryggi og þjálfun. Umfang hvers verkefnis og afhendingar eru skilgreind áður en vinna hefst.

Þetta getum við tekið að okkur

Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.

  • Stöðumat tækniumhverfis og ferla
  • Forgangsröðun og kostnaðaráætlanir
  • Kröfulýsingar og val á lausnum
  • Verkefnastjórn og eftirfylgni innleiðingar

Algengar spurningar

Þurfum við rekstrarsamning til að fá ráðgjöf?+

Nei. Ráðgjöf getur verið afmarkað verkefni eða hluti af áframhaldandi samstarfi. Við skilgreinum umfang og gerum tilboð út frá þörfinni.