Öll þjónusta
Azure ráðgjöf, rekstur og skýjalausnir
Sveigjanlegur rekstur án óvæntra reikninga
Reksturinn þarf kerfi sem vaxa og minnka með honum — en kostnaður og flækjustig í skýinu geta vaxið hratt ef umhverfið er ekki rétt hannað frá upphafi.
Prod hannar, innleiðir og rekur Azure umhverfi fyrir fyrirtæki. Við sjáum um landing zones, netkerfi, aðgangsstýringar, öryggisvöktun, kostnaðareftirlit og flutning kerfa í skýið — í skrefum og án rekstrartruflana.
Við leggjum áherslu á skýra högun, mælanlegan kostnað og öruggan rekstur frá fyrsta degi. Þú færð yfirsýn yfir hverja krónu og tillögur að hagræðingu í hverjum mánuði.
Þetta getum við tekið að okkur
Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.
- Grunnuppsetning og högun (landing zone)
- Flutningur kerfa í skýið
- Kostnaðarvöktun og hagræðing
- Öryggi og aðgangsstýringar