Fara beint í efni

Þjónustustig og viðbragðstímar

Hér eru almenn þjónustumarkmið (SLA) Prod. Þjónustustig getur verið annað samkvæmt samningi. Ef samningur kveður á um aðra svartíma, þjónustutíma eða önnur þjónustuviðmið gilda þau ákvæði framar almennu markmiðunum hér.

Forgangur
Segir til um hversu brýnt málið er og röðun þess við úrvinnslu. Forgangur er metinn út frá áhrifum á rekstur og brýnni þörf fyrir úrlausn.
Svartími
Markmið um tíma þar til fyrstu viðbrögð berast við beiðni. Svartími segir ekki til um hvenær málið verður leyst.
Lausnarmarkmið
Markmið um tíma til úrlausnar máls. Umfang, nauðsynlegar upplýsingar og aðkoma annarra aðila geta haft áhrif á þann tíma.

Markmið innan afgreiðslutíma

Tímarnir teljast innan afgreiðslutíma, ekki sem samfelldir klukkutímar allan sólarhringinn. Fyrstu viðbrögð og lausn máls eru tvö aðskilin markmið.

Almenn markmið úr beiðnakerfi Prod. Allir tímar reiknast innan afgreiðslutíma.
Forgangur málsSvartími — fyrstu viðbrögðLausnarmarkmið
Brýnt (Critical)2 klst.8 klst.
Hár (High)3 klst.32 klst.
Miðlungs (Medium)4 klst.32 klst.
Lágur (Low) — sjálfgefið8 klst.32 klst.
Mjög lágur (Very Low)24 klst.32 klst.

Þetta eru þjónustumarkmið. Umfang máls, nauðsynlegar upplýsingar og aðkoma annarra aðila geta haft áhrif á lausnartíma. Innsendar beiðnir fá sjálfgefið lágan forgang og 8 klst. svartímamarkmið, nema annað sé skilgreint í samningi. Innskráður notandi getur valið annan forgang í verkbeiðnakerfinu á hjalp.prod.is. Forgangur er síðan metinn við meðhöndlun beiðnar.

Neyðarsími og bakvakt

Hringið í 547 6000 vegna brýnna mála utan opnunartíma. Ef ekki næst í aðalnúmer er (+354) 855 2420 varaleið.

Almenn gjaldskrá utan opnunartíma gildir nema annað sé tekið fram í samningi. Sjálfvirk vöktun allan sólarhringinn merkir ekki að þjónustuborð sé mannað allan sólarhringinn.