Fara beint í efni
Öll þjónusta

Hýsing fyrir fyrirtæki — vefir, kerfi og netþjónar

Hýsing fyrir fyrirtæki með vöktun innifalda

Kerfin þín eiga skilið heimili þar sem einhver vakir yfir þeim. Hýsingarþjónusta Prod innifelur vöktun, öryggisuppfærslur, afritun og SSL-skírteini — ekkert falið smáletur.

Við hýsum allt frá einföldum vefsíðum upp í viðskiptakrítísk kerfi og veljum með þér réttu leiðina: eigin innviðir, íslensk gagnaver eða alþjóðlegt ský.

Þjónustusamningar með skilgreindum uppitíma og svartíma tryggja að þú veist nákvæmlega að hverju þú gengur.

Þetta getum við tekið að okkur

Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.

  • Hýsing netþjóna og sýndarvéla
  • Vef- og gagnagrunnshýsing
  • SSL, afritun og vöktun innifalin
  • Uppitímatrygging og þjónustusamningar

Vöktun getur verið samfelld þótt þjónustuborð sé ekki mannað allan sólarhringinn. Skoðið almenn þjónustumarkmið og bakvakt. Sérsamningar ganga framar.