Fara beint í efni
Öll þjónusta

API tengingar og samþættingar kerfa

Kerfin þín í einu samtali

Tvískráning gagna milli kerfa er tímasóun og uppspretta villna. Við tengjum kerfin þín saman svo gögn flæði sjálfkrafa — pantanir í bókhaldið, viðskiptavinir í CRM, birgðastaða í vefverslunina.

Við höfum reynslu af íslenskum og alþjóðlegum kerfum: DK, Payday, regla, Business Central, Shopify, Salesforce og fleirum — og smíðum eigin API þegar kerfi bjóða ekki upp á tilbúnar tengingar.

Allar tengingar eru vaktaðar og með villumeðhöndlun svo þú fréttir af vandamálum frá okkur, ekki frá viðskiptavinum.

Þetta getum við tekið að okkur

Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.

  • REST og GraphQL samþættingar
  • Tengingar við bókhalds- og launakerfi
  • Rauntíma gagnaflæði og webhooks
  • Vöktun og villumeðhöndlun tenginga