Netöryggi og öryggiseftirlit fyrir fyrirtæki
Netöryggi, vöktun og viðbrögð
Netöryggi er ekki eitt verkefni sem klárast, heldur stöðugt eftirlit með innskráningum, endabúnaði, póstkerfum, skýjaþjónustum og veikleikum.
Prod hjálpar fyrirtækjum að greina ógnir snemma, bregðast við frávikum og byggja upp varnir sem standast raunverulegan rekstur. Við sameinum sjálfvirka öryggisvöktun, reglulegar úttektir og mannlegt mat sérfræðinga.
Þjónustan hentar fyrirtækjum sem vilja draga úr áhættu, uppfylla kröfur viðskiptavina eða stjórnvalda og fá skýra mynd af stöðu netöryggis.
Þetta getum við tekið að okkur
Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.
- Öryggisvöktun og atviksgreining
- Endpoint-varnir (EDR/XDR)
- Veikleikaskönnun og úrbætur
- Öryggisvitundarþjálfun starfsfólks
Vöktun getur verið samfelld þótt þjónustuborð sé ekki mannað allan sólarhringinn. Skoðið almenn þjónustumarkmið og bakvakt. Sérsamningar ganga framar.
Algengar spurningar
Þarf lítið fyrirtæki öryggiseftirlit?+
Já — netárásir beinast í vaxandi mæli að litlum og meðalstórum fyrirtækjum, einmitt af því að varnir þeirra eru veikari. Veiðipóstar og gagnagíslataka spyrja ekki um stærð. Grunnvöktun og fjölþátta auðkenning eru ódýrar varnir miðað við tjónið af einu atviki.
Hvað er EDR og þarf mitt fyrirtæki það?+
EDR (Endpoint Detection and Response) er öryggishugbúnaður sem vaktar tölvur og netþjóna, greinir grunsamlega hegðun og getur stöðvað árás sjálfkrafa — mun öflugra en hefðbundin vírusvörn. Fyrir flest fyrirtæki er EDR orðið grunnkrafa, meðal annars frá tryggingafélögum.
Hvað gerist ef öryggisatvik kemur upp?+
Við bregðumst við samkvæmt fyrirfram skilgreindri viðbragðsáætlun: einangrum áhrifasvæðið, stöðvum árásina, endurheimtum gögn úr afritum og skilum atviksskýrslu með úrbótum. Viðskiptavinir í öryggisvöktun fá forgangsviðbragð.