Fara beint í efni
Öll þjónusta

ISO 27001 ráðgjöf og innleiðing

Vottunarhæft öryggisstjórnkerfi

ISO 27001 vottun er sterkasta leiðin til að sýna viðskiptavinum og samstarfsaðilum að upplýsingaöryggi sé tekið alvarlega — og sífellt oftar skilyrði í útboðum og samningum.

Stjórnkerfi upplýsingaöryggis Prod er vottað samkvæmt ISO/IEC 27001:2022 af Scandinavian Business Certification AB (SBCert). Umfang vottunarinnar er ráðgjafarstarfsemi á sviði upplýsingatækni. Við byrjum á stöðumati, vinnum áhættumat, öryggisstefnur og verklagsreglur með ykkar fólki og aðstoðum við undirbúning vottunarúttektar.

Eftir vottun höldum við stjórnkerfinu lifandi með innri úttektum, árlegri rýni stjórnenda og stöðugum umbótum — svo endurvottun verði formsatriði.

Þetta getum við tekið að okkur

Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.

  • Gapgreining og vegvísir að vottun
  • Áhættumat og öryggisstefnur
  • Innleiðing stjórnkerfis (ISMS)
  • Innri úttektir og viðhald vottunar