Fara beint í efni
Öll þjónusta

AI ráðgjöf og Copilot innleiðing fyrir fyrirtæki

AI ráðgjöf sem skilar árangri í rekstri

Tíminn sem fer í endurtekna texta, leit að upplýsingum og handvirka skjalavinnu er dýrasti tími fyrirtækisins. Gervigreind getur unnið stóran hluta þessara verka — en aðeins ef hún er innleidd með skýrum markmiðum, réttum aðgangsstýringum og öruggri meðferð gagna.

Prod hjálpar fyrirtækjum að innleiða Microsoft Copilot og önnur AI tól á ábyrgan hátt. Við byrjum á stöðunni í dag, metum gögn, aðgangsmál og tækifæri, þjálfum starfsfólk og setjum skýrar notkunarreglur.

Fyrir fyrirtæki sem vilja ganga lengra smíðum við sérsniðna AI aðstoðarmenn, RAG lausnir, sjálfvirka skjalavinnslu og greiningartól sem tengjast eigin gögnum og kerfum.

Þetta getum við tekið að okkur

Umfang, verð, ábyrgð og þjónustutímar eru skilgreind í tilboði og samningi.

  • AI stefnumótun og tækifæragreining
  • Microsoft Copilot innleiðing
  • Þjálfun starfsfólks og notkunarreglur
  • Öryggis- og persónuverndarrýni AI-notkunar
  • Sérsmíðaðir AI-aðstoðarmenn og RAG-lausnir

Algengar spurningar

Hvar á fyrirtæki að byrja með gervigreind?+

Á gögnunum og aðgangsmálunum. AI-tól eins og Copilot vinna með gögnin þín — ef aðgangsstýringar eru í ólagi getur tólið óvart opinberað efni sem átti að vera lokað. Fyrsta skrefið er alltaf öryggisrýni, síðan afmörkuð prufuverkefni með skýrum markmiðum og mælingum.

Er Microsoft Copilot öruggt fyrir fyrirtækjagögn?+

Copilot vinnur innan Microsoft 365 umhverfisins og gögnin fara ekki í þjálfun á opnum mállíkönum. Öryggið veltur hins vegar á aðgangsstýringum fyrirtækisins sjálfs — Copilot sér allt sem notandinn sér. Þess vegna byrjar innleiðing hjá okkur alltaf á tiltekt í aðgangsmálum.

Hvað er RAG lausn?+

RAG (Retrieval-Augmented Generation) tengir gervigreind við eigin gögn fyrirtækisins — handbækur, samninga, verkferla — svo svörin byggi á þínum raunverulegu upplýsingum í stað almennrar þekkingar líkansins. Þannig verður til AI-aðstoðarmaður sem þekkir fyrirtækið þitt.