Dægradvöl
Leikir þróaðir af Prod
Við smíðum hugbúnað fyrir fyrirtæki alla daga — en þegar kaffihléið verður óvænt langt, eða þú saknar okkar utan vinnutíma, þarftu eitthvað annað. Þessir leikir eru gerðir hér heima hjá okkur, á sama tæknistafla og lausnirnar sem við byggjum fyrir viðskiptavini. Bara skemmtilegri.
Engin innskráning, engar vafrakökur til að spila, engin afsökun. Stigin fara á opinberu stigatöfluna eftir yfirferð.
Spurningabankinn inniheldur 3.764 spurningar og stækkar reglulega.