Starfsfólk
Ert þú vinnuhestur með réttu hestöflin?
Nýráðningar
Prod er stóð af vinnuhestum — fólki sem dregur upplýsingatækni íslenskra fyrirtækja áfram af afli og þrautseigju. Við erum alltaf að svipast um eftir næsta hesti í stóðið.
Afköst
Þú kemur hlutunum í gegn. Verkefni sem lenda hjá þér stoppa ekki — þau klárast.
Þrautseigja
Flókin mál fæla þig ekki frá. Þú fylgir úrlausnum eftir þar til þær halda.
Úrlausnir
Þú talar mannamál, hugsar í lausnum og skilur að tæknin er til fyrir fólkið — ekki öfugt.
Ábyrgð
Þú stendur við orðin þín. Einn ábyrgðaraðili er loforð sem byrjar hjá hverjum og einum.
Sæktu um
Sendu okkur nokkrar línur um sjálfa/n þig, hvað þú hefur dregið í gegn og hvers vegna Prod ætti að spenna þig fyrir vagninn — ásamt ferilskrá.
Sækja um starfSpurningar um störf: starf@prod.is